Ert þú með ábendingu?

Sendu okkur myndir eða myndskeið úr þínu nærumhverfi á netfrett@mbl.is eða með skilaboðum á Facebook-síðu mbl.is

Flugslys í Ölpunum

Umsjón: Sunna Ósk Logadóttir (sunna@mbl.is)

Umfjöllun lokið: síðast uppfært fim. 26. mar. 2015 kl. 0:00

Aðstoðarflugmaður vélar GermanWings er talinn hafa brotlent vélinni vísvitandi í frönsku Ölpunum.

mbl.is

Við þökkum fyrir samfylgdina, umfjölluninni hefur lokið.

Síðasta ljósmyndin

Mynd af írönskum blaðamanni speglast í glugga á hótelherbergi hans í Barcelona er hugsanlega síðasta ljósmyndin sem tekin var af fórnarlömbum flugslyssins er þau voru enn á lífi. Aðeins stuttu síðar gekk hann um borð í vél GermanWings. Hussein Javadi var íþróttafréttamaður sem staddur var í Barcelona til að fjalla um leik Real Madrid og Barcelona sem fram fór á sunnudag. Hann tók myndina á símann sinn er hann var að leggja af stað út á flugvöll. Hann var á leið til Þýskalands vegna vinnu sinnar sem íþróttafréttamaður.

Facebook-síðu flugmannsins eytt

Guardian greinir frá því að búið sé að loka Facebook-síðu Andreas Lubitz. Litlar upplýsingar um líf hans er að finna á netinu. Á Facebook-síðu hans mátti þó ráða, samkvæmt upplýsingum blaðamanns Guardian, að hann hafi verið venjulegur, ungur maður sem hafði áhuga á flugi og tækni, sem ekki kemur á óvart. Þá hafi hann hlustað á raftónlist, farið á djammið og stundum í keilu. Á síðunni mátti sjá að hann hlustaði m.a. á tónlist David Guetta og hafði áhuga á klifri. Þá hafði hann lækað síðu sem heitir „Þegar karlar eru einir“. Síðan hefur ekkert með kynlíf eða klám að gera - heldur má finna á henni fyndin myndskeið af karlmönnum að leika sér með keðjusagir á ísilögðum vötnum og að passa börn.

Andreas Lubitz has been identified as the 28-year-old co-pilot of the crashed Germanwings flight. He had 630 hours of...

Posted by The New York Times on Thursday, March 26, 2015

Dagarnir fullir af þjáningu

Angela Merkel kanslari Þýskalands segir að fréttir af orsökum slyssins auki enn á sorg ástvina fórnarlambanna. „Dagarnir eru fullir af þjáningu,“ sagði Merkel á blaðamannafundi sem nú stendur yfir.

Fleiri greina frá þunglyndi flugmannsins

Nágrannar flugmannsins Andreas Lubitz segja í samtali við fréttamann Sky-sjónvarpsstöðvarinnar að hann kunni að hafa glímt við þunglyndi áður fyrr. Þeir segja hann alltaf hafa ætlað sér að verða flugmaður, allt frá því að hann var barn. Lögreglan leitar nú í húsi hans að vísbendingum um hvað honum gæti hafa gengið til er hann stýrði flugvélinni á fjallið.

Glímdi við vanda árið 2009

Blaðamaður þýska dagblaðsins Spiegel segir á Twitter að vinir flugmannsins Andreas Lubitz hafi sagt hann hafa fundið fyrir kulnun í starfi eða þunglyndi árið 2009. Hann hafi þá tekið sér leyfi frá flugnámi sínu. Forstjóri Lufthansa var einmitt spurður um þetta hlé sem Lubitz gerði á þjálfun sinni á blaðamannafundi í dag. Hann hafði engin skýr svör en sagði að hann hafi svo lokið sínu námi og þjálfun og hafið störf hjá GermanWings árið 2013.

Fjölskyldur fórnarlamba á slysstað

Fjölskyldur fórnarlamba flugslyssins í frönsku Ölpunum eru nú komnar að slysstaðnum.

Hvers vegna komst hann ekki inn?

Forstjóri Lufthansa lýsti því á blaðamannafundi í dag hvers vegna flugstjórinn komst ekki aftur inn í flugstjórnarklefann. Hann segir að hægt sé að setja inn aðgangsorð til að opna hurðina sem verði til þess að bjalla hringir í flugstjórnarklefanum. Ef enginn bregðist við því hljóði þá opnist hurðin sjálfkrafa. En hann segir að hægt sé að koma í veg fyrir þetta með því að ýta á takka í flugstjórnarklefanum - sé ýtt á hann læsist hurðin í fimm mínútur. „Annað hvort setti flugstjórinn ekki inn réttan kóða, sem okkur finnst ólíklegt því að allir sem við þetta starfa kunna hann utanað, eða að hann hafi slegið inn kóðann en að aðstoðarflugmaðurinn hafi komið í veg fyrir að hurðin opnaðist með því að ýta á hnappinn,“ sagði Carsten Spohr, forstjóri Lufthansa.

Fleiri flugfélög breyta reglum

Norwegian Air hefur ákveðið að breyta reglum sínum þannig að tveir verði ávallt að vera inni í flugstjórnarklefanum. Það sama hefur Icelandair ákveðið að gera. Flugstjóri flugvélar GermanWings fór út úr klefanum og á klósettið. Hann komst aldrei aftur inn í klefann.

Mynd af heimili flugmannsins

BBC segir að lögreglumenn hafi í dag farið inn í hús flugmannsins Andreas Lubitz í Montabaur í Þýskalandi. Bærinn er um 60 km norðvestur af Frankfurt. Reynt er að halda fjölmiðlum frá svæðinu.

Fleiri sjálfsvíg í háloftunum

Árið 1982 brotlenti vél Japan Airlines í Tókýó-flóa. 24 af þeim 174 sem voru um borð létust. Flugstjóranum var kennt slysið en í ljós kom síðar að hann hafði glímt við geðrænan vanda. Árið 2013 hrapaði vél Mozambique Airlines í Namibíu og allir 27 sem voru um borð fórust. Í frumrannsókn kom fram að flugstjórinn hefði vísvitandi brotlent vélinni. Hann hafði áður læst aðstoðarflugmanninum úti úr flugstjórnarklefanum.

Venjulegur gaur

Flugmaðurinn Andreas Lubitz var frá bænum Montabaur í Þýskalandi. Kunningjar hans lýsa honum sem indælum, ungum manni og segja hann hafa verið „venjulegan gaur“. Hann er sagður hafa verið kurteis og skemmtilegur. Um 12 þúsund manns búa í Montabaur.

Þetta vitum við um flugmanninn

Andreas Lubitz var 28 ára gamall Þjóðverji. Hann hafði litla reynslu en hafði lokið allri tilskilinni menntun og þjálfun til að fljúga vélinni einn. Hann hafði undirgengist læknisskoðun og staðist hana. Hann hafði starfað hjá GermanWings frá árinu 2013. Ekki er vitað til þess að hann hafi haft nein tengsl við hryðjuverkahópa. Félagar hans í flugklúbbi í Þýskalandi segja hann hafa tekið flugmannspróf á táningsaldri. Hann hafi aldrei sýnt nein merki um þunglyndi. Lubitz andaði rólega, allt frá því að hann lækkaði vélina og þar til hún brotlenti. Farþegarnir öskruðu rétt áður en vélin skall á fjallinu og tættist í sundur.

Flugmenn í áfalli

Jim McAuslan, formaður samtaka flugmanna í Bretlandi, segir að atvikið í frönsku Ölpunum sé „hrikalegt“. Hann segir flugmenn víða í áfalli og í raun dofna yfir þeim fréttum að flugmaður hafi flogið farþegaþotu vísvitandi á fjall. Aðstoðarflugmaðurinn hleypti flugstjóranum ekki inn í flugstjórnarklefann heldur lækkaði flugið. 150 manns fórust.

Engin tengsl við hryðjuverk

Innanríkisráðherra Þýskalands segir að enn sem komið er hafi ekki fundist nein tengsl flugmannsins sem brotlenti vélinni og hryðjuverkahópa. „Eftir því sem við best vitum núna og eftir að hafa borið saman okkar upplýsingar, þá finnast engin tengsl við hryðjuverk.“

Hvers vegna gerði hann þetta?

Ekkert hefur enn komið fram sem gæti mögulega skýrt hvers vegna aðstoðarflugmaður vélar GermanWings lækkaði flug vélarinnar og flaug, pollrólegur að því er virðist, á fjall í frönsku Ölpunum. „Svona harmleikur var ekki einu sinni til í okkar verstu martröðum,“ sagði forstjóri Lufthansa, móðurfélags GermanWings, á blaðamannafundi í dag. Andreas Lubitz var þýskur og 28 ára. Hann var við stýrið er vélin brotlenti.