
Hefur þú áhuga á að þróa lausnir sem eru notaðar af 80% þjóðarinnar í hverri viku?
mbl.is vill ráða til sín öflugan forritara til að taka þátt í að þróa vefinn og móta til framtíðar.
Við leitum að einstaklingi sem...
- hefur reynslu af vinnu í LAPP umhverfi, t. d. Linux, Apache, PostgreSQL og PHP/Perl/Python og öðrum open-source hugbúnaðarlausnum
- hefur mikla reynslu af CSS, XHTML og Javascript
- tileinkar sér bestu tæknilausnir hverju sinni og hefur metnað fyrir viðmóti, virkni og vefhönnun
Þekking á MVC-miðuðum vefkerfum eins og Django, Ruby on Rails, Catalyst eða Symfony er kostur. Nýjungar á vefnum eru byggðar í Django/Python vefumhverfi
Viltu vita meira um vinnustaðinn?
Starfsumhverfið á mbl.is einkennist að hluta til af stærri verkefnum sem taka nokkrar vikur í smíðum og sem 2-4 forritarar koma að, og að hluta af smærri verkefnum sem taka fáeinar klukkustundir og sem einn forritari sér alfarið um. Venjulega er hvort tveggja í gangi í einu, sem hefur í för með sér að starfið er mjög fjölbreytt.
Stærri verkefni eru yfirleitt heilir vefhlutar eins og t.d. Smartland Mörtu Maríu. Smærri verkefni felast yfirleitt í tilteknum endurbótum á undirvefjum eða bakendakerfum sem þegar eru til.
Bakendi mbl.is byggir á Linux, Apache, PostgreSQL og Python/Perl,
og hin tæknilega umgjörð starfsins einkennist af þessu. Starfsmenn
fá nýlega og öfluga vinnustöð með Apple OS X, en geta einnig valið að nota
Linux eða Windows ef þeir æskja þess frekar.
Netþjónar okkar sem eru þegar allt er talið um 10 talsins eru allir keyrðir á
Debian. Til útgáfustýringar
notum við Git.
Á svo lítilli deild er ekki hagkvæmt að greina sérstaklega milli framenda- og bakendaforritunar, þannig að oftast mun sami maðurinn skrifa bæði Python- eða Perl-kóða fyrir bakendann og XHTML og Javascript (gjarna með aðstoð jQuery) fyrir framendann. Á deildinni vinnur þó einn grafíker, sem gerir útlitsteikningar og grafík í samráði við aðra starfsmenn deildarinnar.
Allar nýjar lausnir eru unnar í Python og Django en mörg eldri kerfi vefsins keyra á Perl-bakenda.
mbl.is er vefmiðill sem um 360 þúsund vikulegir notendur sækja í viku hverri samkvæmt samræmdri vefmælingu. Í fjölmiðlamælingum hefur mbl.is verið sá miðill sem þjóðin ber mest traust til af einkareknum miðlum. Yfir 80% Íslendinga segjast heimsækja vefinn í hverri viku og rösklega 60% daglega. Mikið er lagt upp úr að starfsmenn auki við sig þekkingu og tileinki sér bestu vinnuaðferðir og lausnir hverju sinni.
mbl.is er hluti af útgáfufyrirtækinu Árvakri sem einnig gefur út Morgunblaðið og Monitor. Starfsumhverfið er líflegt og hjá Árvakri starfar öflugt starfsmannafélag.
Viltu sækja um starfið?
Áhugasamir sendi umsókn ásamt ferilskrá á starf@mbl.is. Umsækjendur geti sýnt fullbúna vefi, kóðadæmi eða önnur sýnidæmi sem þeir hafa unnið. Frekari upplýsingar veitir Soffía Haraldsdóttir, netstjóri mbl.is, í síma 569-1260.




