Myndagallerí
Innlendar myndir vikunnar
Birtingardagur:
Föstudaginn, 26. september 2014
Gæsaveiðitímabilið er greinilega hafið hjá köttunum eins og hjá mönnunum. Þessi stálpaði kettlingur náði þó ekki að grípa gæsina á meðan hún gafst þrátt fyrir heiðarlega tilraun.
Mynd 1 af 13 – Ljósm.: mbl.is/Golli
Sigurjón Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, ber möppur inn í dómsal. Aðalmeðferð í máli sérstaks saksóknara gegn honum og Sigríði Elínu Sigfúsdóttur fór fram í vikunn.
Mynd 2 af 13 – Ljósm.: mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson
Ofurtöffarinn Raggi Bjarna varð áttræður á mánudaginn, og hélt að sjálfsögðu tónleika af því tilefni. Geri aðrir betur.
Mynd 3 af 13 – Ljósm.: mbl.is/Árni Sæberg
Senn líður að hausti.
Mynd 4 af 13 – Ljósm.: mbl.is/Ómar Óskarsson
Innlendar myndir vikunnar
Mynd 5 af 13 – Ljósm.: mbl.is/Ómar Óskarsson
Innlendar myndir vikunnar
Mynd 6 af 13 – Ljósm.: mbl.is/Ómar Óskarsson
Sveppatínsla er í hugum sumra árlegur haustboði.
Mynd 7 af 13 – Ljósm.: mbl.is/Ómar Óskarsson
Regnbogar blöstu við regnbörðum Íslendingum í vikunni.
Mynd 8 af 13 – Ljósm.: mbl.is/Ómar Óskarsson
Læðan Rósa kom í leitirnar eftir þriggja ára fjarveru. Eigandi hennar, Végeir Hjaltason, hafði gefið upp alla von um að sjá hana aftur.
Mynd 9 af 13 – Ljósm.: mbl.is/Árni Sæberg
Að taka myndir af sjálfum sér, svokallaðar „selfie“, nýtur mikillar hylli. Til að ná sem bestri sjálfsmynd er gott að hafa framlengingu á handleggnum eða svokallaða „sjálfsmyndastöng.“ Slíkur búnaður virðist þó ekki vera búinn að ryðja sér til rúms hér á landi. Afgreiðslumaður í ljósmyndavöruversluninni Beco sagði að
þeir væru aðeins með stöng fyrir GoPro-vélar sem væri hægt að nota fyrir annarskonar myndavélar með sérstöku millistykki. Hann sagði stöngina aðallega keypta af veiðimönnum sem vilja geta stungið GoPro-vélinni ofan í vatn. Hjá vefversluninni Aukahlutir.net er hægt að kaupa sjálfsmyndastöng með bluetooth fyrir síma. Verslunin hóf sölu á þeim í síðustu viku svo ekki er komin reynsla á vinsældir búnaðarins á Íslandi. Afgreiðslumaðurinn hjá Aukahlutum.net sagði að slíkar stangir sæjust mikið á vinsælum ferðamannastöðum í útlöndum en þá er stöngin
notuð til að lyfta myndavélinni upp fyrir mannfjöldann
til að ná betri myndum.
Mynd 10 af 13 – Ljósm.: mbl.is/Ómar Óskarsson
Blindhorn eru slæm fyrir alla, sérstaklega hjólreiðamenn.
Mynd 11 af 13 – Ljósm.: mbl.is/Kristinn Ingvarsson
Og enn haustar.
Mynd 12 af 13 – Ljósm.: mbl.is/Ómar Óskarsson
Labrador-hundurinn Diesel hleypur að gervibráð á vatni við Tjarnhóla á Mosfellsheiði, sem er vinsælt æfingasvæði fyrir veiðihunda.
Mynd 13 af 13 – Ljósm.: mbl.is/Ingó