Myndagallerí
Stórkostlegar dýramyndir
Birtingardagur:
Þriðjudaginn, 30. júní 2015
Fjallmyndarleg fjallagórilla, þyrstir og litríkir apar, ísbjörn á bólakafi og apar sem skríkja af kátínu. Dýramyndarsyrpa vikunnar er fyndin og furðuleg.
Litríka apategundin mandrill er af augljósum ástæðum nokkuð sérstök. Þessi heldur til í dýragarði í Hollandi og hefur eins og önnur dýr garðsins þurft að kæla sig niður í sumarhitunum með því að gæða sér á frosnum ávöxtum.
Mynd 1 af 23 – Ljósm.: Piroschka van de Wouw
Silfurbakurinn Shabani er sagður fjallmyndarlegur. Konur flykkjast í dýragarðinn í Japan til að sjá hann setja sig í stellingar fyrir myndatöku. Hann er átján ára og er víst einnig góður pabbi.
Mynd 2 af 23 – Ljósm.: HIGASHIYAMA ZOO
Lemúrar sleikja ísmola í dýragarði í Ísrael. Þar hefur hitinn farið vel yfir 40°C undanfarna daga.
Mynd 3 af 23 – Ljósm.: AFP
Ljón geispar í dýragarði í austurhluta Þýskalands.
Mynd 4 af 23 – Ljósm.: MARTIN SCHUTT
Sebrahestar fá sér að éta í dýragarði í Muenster í Þýskalandi.
Mynd 5 af 23 – Ljósm.: FRISO GENTSCH
Dýrahirðir í dýragarði í Demydiv í Úkraínu gefur nashyrningi að éta. Dýragarðurinn er einn stærsti einkadýragarður í heimi.
Mynd 6 af 23 – Ljósm.: AFP
Rauður pandabjörn skoðar myndavél í fylgsni sínu í dýragarðinum í Turin á Ítalíu.
Mynd 7 af 23 – Ljósm.: AFP
Rauð panda í dýragarði á Ítalíu.
Mynd 8 af 23 – Ljósm.: AFP
Þessi rauði pandabjörn er grallari.
Mynd 9 af 23 – Ljósm.: AFP
Komodo-drekar fá að éta í dýragarði í Indónesíu. Komodo-drekar finnast aðeins á Komondo-eyju. Þar er að finna um 2.700 skepnur.
Mynd 10 af 23 – Ljósm.: AFP
Ungur hrægammur.
Mynd 11 af 23 – Ljósm.: AFP
Karlljón og ljónynja knúsast í dýragarði í St Pétursborg.
Mynd 12 af 23 – Ljósm.: AFP
Jagúarhvolpur fluttur um í fötu í dýragarðinum í St Pétursborg.
Mynd 13 af 23 – Ljósm.: AFP
Gíraffi í Mexíkó.
Mynd 14 af 23 – Ljósm.: AFP
Gíraffi í Mexíkó.
Mynd 15 af 23 – Ljósm.: AFP
Hvítir ljónsungar ásamt móður sinni í dýragarði í Amneville í Frakklandi.
Mynd 16 af 23 – Ljósm.: AFP
Páfugl breiðir úr fögru stéli sínu í Turin á Ítalíu.
Mynd 17 af 23 – Ljósm.: AFP
Gíraffi fær góðgæti.
Mynd 18 af 23 – Ljósm.: AFP
Ungur api heldur fast í móður sína í dýragarði í Tel Aviv.
Mynd 19 af 23 – Ljósm.: AFP
Hvítur páfugl sýnir sig í Japan.
Mynd 20 af 23 – Ljósm.: AFP
Björn gæðir sér á vatnsmelónu í dýragarði í Jerúsalem. Þar hefur hitinn farið vel yfir 40 stig að undanförnu.
A brown bear eats a watermelon inside a pool at the Jerusalem Biblical Zoo, on May 27, 2015, as temperatures in Israel reached 44 degrees Celsius (111 Fahrenheit). AFP PHOTO / MENAHEM KAHANA
Mynd 21 af 23 – Ljósm.: AFP
Órangútar leika sér í dýragarðinum í Moskvu.
Mynd 22 af 23 – Ljósm.: AFP
Ísbjörn á sundi í dýragarði í Moskvu. Undanfarið hefur verið heitt í borginni, í kringum 30°C.
Mynd 23 af 23 – Ljósm.: AFP