Tíðindin um að brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll í mars hafi verið 173 þúsund í mars eru mjög ánægjuleg. Meira
Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að niðurstaða vantrauststillögunnar í gær, sem var felld, hafi verið stórsigur fyrir ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar. Meira
Athuganir á hlutdeild launa og rekstrarafgangs fyrirtækja í þróun á verðvísitölu landsframleiðslunnar benda ekki til þess að álagning fyrirtækja hafi drifið verðbólguna síðastliðin þrjú ár. Meira
Ráðist verður í hagræðingaraðgerðir sem eiga að spara 17 milljarða á næsta ári og 10 milljarða til frambúðar. Þetta kom fram í máli Sigurðar Inga Jóhannssonar fjármálaráðherra þegar hann kynnti nýja fjármálaáætlun í morgun fyrir árin 2025 til 2029. Meira
Greiningardeild Íslandsbanka spáir því að tólf mánaða verðbólga muni í þessum mánuði lækka nokkuð myndarlega, eða úr 6,8% niður í 6,1%. Meira
Síðastliðinn mánudag, 8. apríl, var 35 ára afmæli Bónuss. Haldið var upp á þau tímamót með 35% afslætti af jafn mörgum vörutegundum daglangt í verslunum fyrirtækisins, sem eru alls 33 hringinn um landið. Meira
Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Seðlabanka Íslands, hefur þegið starf í Mílanó á Ítalíu. Meira
Landsbankinn spáir að verðbólga lækki úr 6,8% í 6,1% á milli mánaða í apríl. Aftur á móti er því jafnframt spáð að vísitala neysluverðs hækki um 0,61%. Meira
Orkuöflun verður aukin það sem eftir lifir kjörtímabils, séríslenskar reglur og ástandið almennt í útlendingamálum er óásættanlegt, endurbætur á örorkukerfinu standa til og vinna verður bug á verðbólgu. Meira
Sigurður Ingi Jóhannsson segir það spennandi að taka við fjármálaráðuneytinu. Þetta sé mikilvægt verkefni sem þurfi að nálgast af auðmýkt. Hann tók við lyklavöldunum að fjármálaráðuneytinu í morgun úr hendi Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur, sem færir sig aftur yfir í utanríkisráðuneytið. Meira
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður Pírata, segist hafa áhyggjur af því að traust á stjórnmálunum muni rýrna eftir að ný ríkisstjórn tekur við undir forystu Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins. Meira
Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir að fráfarandi ríkisstjórn skilji eftir sig slæma stöðu í efnahagsmálum og að ekkert bendi til þess að ný ríkisstjórn ráði við verkefnin sem eru fyrir hendi. Meira
Hagsmunasamtök heimilanna lýsa fullri ábyrgð á hendur ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur á því vaxtaofbeldi sem heimili landsins hafa verið beitt á undanförnum tveimur árum og ekki sér enn fyrir endann á. Meira
Greinendur segja að hagvaxtarhorfur í Bandaríkjunum og evrusvæðinu séu ólíkar. Meira
Ungir menn frá Suður-Asíu hafa gengið í þjónustu Rússlandshers eftir að hafa verið lofað góðum kjörum í hernum. Mikið mannfall hefur orðið í þeirra röðum og er erfitt að komast út úr herþjónustunni. Meira
Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, telur að verðhækkun á húsnæði í nágrenni höfuðborgarsvæðisins geti verið skýring þess að verðbólga hefur hækkað um 0,2 prósentustig frá síðasta mánuði. Meira
Tólf mánaða verðbólga mælist nú 6,8% og hækkar um 0,2 prósentustig frá síðasta mánuði þegar hún mældist 6,6%. Meira
Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna segir neytendur vera á milli steins og sleggju í kjölfar ákvörðunar Seðlabankans um að halda stýrivöxtum óbreyttum. Meira
Seðlabankastjóri hefur væntingar um að háskólastéttirnar og opinberi markaðurinn muni undirrita kjarasamninga á sömu nótum og almenni markaðurinn. Samningsaðilar höfðu ekki trú á samningunum 2023. Meira
Seðlabankastjóri segir þá hættu vera fyrir hendi að háir stýrivextir kæli hagkerfið um of. Ef það gerist geti bankinn brugðist hratt við og hraðað vaxtalækkanaferlinu sem virðist í burðarliðnum. Meira