„Viltu hafa hlutina einfalda? Hafðu þá þetta, helvítið þitt,“ segir maður og stappar á höfði annars manns sem reiður múgurinn hefur afklætt á götunni. Þessa meðferð fá ræningjar í Venesúela frá samborgurum sínum. Óöld hefur blossað upp í landinu. Borgararnir hafa tekið lögin í sínar hendur. Meira
Yfir 200.000 mótmælendur komu saman í Venesúela í gær til að mótmæla Nicolas Maduro, forseta landsins, og ríkisstjórn hans. Mótmæli hafa staðið yfir í landinu í 50 daga og oft hafa brotist út hörð átök. Maduro er gríðarlega óvinsæll meðal almennings. Meira
Spánverjar og gestir þeirra böðuðu sig í sólskini í sumar í orðsins fyllstu merkingu. Undanfarin 15 ára hafa ferðamenn ekki verið fleiri. Þrátt fyrir það sjá landsmenn dökk ský stíga upp úti við hafsbrún því vinsælir ferðamannastaðir eru orðnir ásetnari en viðunandi þykir. Meira
Nicolas Maduro, forseti Venesúela, sakaði bankann Citibank um efnahagsþvinganir í sjónvarpsávarpi sínu í gær. Citibank ætlar, að sögn Maduros, að loka helsta gjaldeyrisreikningi ríkisins, sem notaður er til að greiða fyrir erlend viðskipti, innan mánaðar. Meira
Nicolas Maduro, hinn umdeildi forseti Venesúela, sagðist í gærkvöldi styðja Bernie Sanders í forsetakosningunum í Bandaríkjunum. Ef kosningarnar yrðu „frjálsar“ yrði Sanders næsti forseti landsins. Meira
Henrique Capriles, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela sem hefur meirihluta á þinginu, varar við vaxandi ólgu í samfélaginu. Efnahagur landsins stendur mjög höllum fæti nú um stundir, m.a. vegna lágs heimsmarkaðsverðs á olíu. Meira
Venesúelskar öryggissveitir beittu táragasi á hóp mótmælenda í Caracas, höfuðborg landsins, í dag. Mótmælendurnir krefjast þess að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram um framtíð Nicolas Maduro, forseta Venesúela, á valdastóli. Meira
Venesúelabúar misstu hálftíma svefn sl. nótt, þegar klukkunni var flýtt um hálftíma til að spara rafmagn samkvæmt fyrirskipun forsetans, Nicholas Maduro. Meira
Kjörstjórn í Venesúela hefur staðfest niðurstöðu þingkosninga sem fóru fram í landinu nýverið. Þar fór stjórnarandstaðan með sigur af hólmi og fékk tvo þriðju hluta atkvæða. Meira
Sósíalistaflokkurinn í Venesúela hefur nú í fyrsta skipti í 16 ár misst tökin á þinginu eftir stórsigur kosningabandalags mið- og hægriflokka þar í landi. Fréttaveita AFP greinir frá því að niðurstaða þingkosninganna veiki mjög stöðu Nicolasar Maduros forseta, en stjórnarandstaðan fékk minnst 99 af 167 þingsætum og sósíalistar 46. Meira
Hann er aðeins 11 ára en hefur þegar sótt allsherjarþing SÞ, verið myndaður með Barack Obama og hitt páfa. Þar að auki á hann gullslegna byssu. Pilturinn sem um ræðir er nefndur Kolya og er sonur Alexanders Lukashenko, forseta Hvíta-Rússlands, sem hefur verið kallaður „síðasti einræðisherra Evrópu“. Meira
Forseti Bólivíu, Evo Morales, fagnaði sigri í forsetakosningunum í gær en hann fékk yfir 60% atkvæða. Meira
Venesúelamenn minnast þess í dag að ár er liðið frá því að forsetinn fyrrverandi, Hugo Chavez, lést. Almenningur í landinu á nú erfitt uppdráttar sökum mikillar verðbólgu og útbreidds atvinnuleysis. Meira
Mörg hundruð þúsund íbúar söfnuðust saman á götum úti í Venesúela í dag til að mótmæla eða lýsa yfir stuðningi við ríkisstjórn Nicolas Maduros, forseta landsins. Það fer ekki framhjá þeim sem fylgjast með ástandinu í landinu að þjóðin hefur klofnað í tvær fylkingar. Meira
Ofbeldi gegn mótmælendum í Venesúela hefur stigmagnast en seinasta nótt var sú átakamesta hingað til. Að minnsta kosti fimm hafa látið lífið í átökum stjórnarandstæðinga og ríkislögreglunnar og yfir hundrað eru alvarlega slasaðir. Meira
22ja ára háskólanemi lést af skotsárum sínum í Venezúela í dag eftir að hafa verið skotinn í höfuðið í gær. Hafa því nú fimm mótmælendur látið lífið síðan átök hófust á milli stjórnvalda og mótmælenda, samkvæmt frétt Reuters fréttastofunnar. Meira
Tveir létust og 23 slösuðust eftir að mótmæli brutust út í Karakas, höfuðborg Venesúela í dag. Fólkið var að mótmæla versnandi efnahag landsins og laust mótmælendum saman við stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar. Meira
„Daginn sem venesúelski forsetinn lést fann ég strax fyrir þeirri þörf að gera af honum styttu,“ segir Julio Cesar Briceno sem vinnur að rúmlega þriggja metra styttu af Hugo Chavez sem lést í mars síðastliðnum. Briceno vonast til að styttan verði til að varðveita arfleifð Chavez. Meira
Bandaríski leikstjórinn Oliver Stone ætlar að gera kvikmynd um Hugo Chavez, fyrrverandi forseta Venesúela sem lést í mars sl. Þetta segir eftirmaður hans á forsetastólnum, Nicolas Maduro. Meira
„Djöfullinn er kominn, ég finn lykt af brennisteini,“ segir teiknimyndafígúran Hugo Chavez við uppreisnarhetjurnar Simon Bolivar og Che Guevara þegar „Sammi frændi“ (e. Uncle Sam) mætir þeim í himnaríki, í nýrri teiknimynd sem venesúelska sjónvarpsstöðin Barrio TV sýndi í gær. Meira