Oscar Pistorius var fundinn sekur um manndráp af gáleysi eftir að hafa skotið að baðherbergishurð í íbúð sinni með þeim afleiðingum að kærasta hans, Reeva Steenkamp, lést. Fjölskylda Steenkamp hefur lýst yfir óánægju sinni með dóminn og telur hálfbróðir Reevu að Pistorius hafi komist upp með morð.