Danir hafa náð langt í að taka umræðu um hjólreiðasamgöngur úr skotgröfum vinstri og hægri pólitíkur, segir formaður dönsku hjólasamtakanna sem flutti fyrirlestur á Samgönguviku. Stuðningur sé við að efla hjólreiðar úr báðum áttum, dönsk stjórnvöld segja hvern hjólaðan km spara samfélaginu 145 kr.