„Ég held að þetta hafi verið unnið stig fyrir okkur og við börðumst vel fyrir því, en það eru alltof margar gloppur í okkar leik. Við náðum okkur ekki á strik stóran hluta leiks,“ sagði Halldór Jóhann Sigfússon þjálfari FH eftir jafntefli við ÍBV, 29:29 í 1. umferð Olís-deildar karla í handbolta í Kaplakrika í kvöld.