Hjónin Hafsteinn Steinsson og Elín Kristjánsdóttir Linnet lentu í þeim ótrúlegu aðstæðum að þurfa að taka á móti barni á Vesturlandsveginum í morgunumferðinni á þriðjudagsmorgun. Elín sem var ólétt af tvíburum steig út úr bílnum og tók sjálf á móti fyrri syni sínum standandi við veginn.