Suðurafríski spretthlauparinn Oscar Pistorius sem dæmdur var í fimm ára fangelsi í dag var færður í Pretoria's Kgosi Mampuru-fangelsið um leið og réttarhöldunum lauk. Pistorius var dæmdur fyrir manndráp af gáleysi en hann skaut unnustu sína Reevu Steenkamp til bana í fyrra.