Börnin á Barnaspítala Hringsins ráku upp stór augu þegar sjálfur Svarthöfði heimsótti deildina í dag í fylgd trausts aðstoðarmanns. Það tók smá stund fyrir börnin að taka þá félaga í sátt en þegar þeir færðu börnunum leikföng úr versluninni Nexus voru þau til í að blanda geði við fúlmennin alræmdu.