Sænsk stjórnvöld hafa ákveðið að hætta leit að kafbátnum sem talið var að væri í skerjagarðinum fyrir utan Stokkhólm. Er þar með lokið mestu hernaðaraðgerðum Svía frá lokum kalda stríðsins en ekki er vitað til þess að fundist hafi tangur né tetur af útlendum kafbát í skerjagarðinum þrátt fyrir leit.