Mikil eftirspurn var eftir skartgripum á uppboði Christies í Genf í vikunni og seldust munir fyrir 150 milljónir Bandaríkjadala, eða sem nemur 18,6 milljörðum króna. Yfirmaður Evrópudeildar Christies segir að uppboðið sýni að það séu til nægir peningar í heiminum en minna sé til af eigulegum munum.