Verkfall lækna á heilsugæslustöðvum hefur ekki haft mikil áhrif á störf bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi framan af degi en gert hafði verið ráð fyrir auknum straumi vegna aðgerða lækna. Sama staða verður uppi á teningnum á morgun og aukist fjöldi sjúklinga vegna þess þarf að forgangsraða.