Fjölmennt var á fundi Almannavarna um áhrif brennisteinsdíoxíðsmengunar frá eldgosinu í Holuhrauni í höfuðstöðvum Veðurstofu Íslands í dag. 20-60 þús. tonn af SO2 fara út í andrúmsloftið á degi hverjum en til samanburðar má nefna að heildarlosun Evrópusambandsins er um 14.000 tonn á venjulegum degi.