Jólasveinn í fullum skrúða vakti athygli gesta í Sólskinsfiskabúrinu í Tókýó þegar hann birtist á meðal sjávardýranna á dögunum. Búrið er risavaxið og í því lifa 60.000 fiskar og önnur dýr, meðal annars höfrungar, otrar og mörgæsir. Flest glöddust þegar þau sáu sveinka enda með fullan poka af góðgæti fyrir dýrin.