Enn er óveður víða á landinu, norðlæg átt 18-25 m/s, hvassast norðantil á landinu. Veður versnaði á Akureyri mikið með deginum og eftir hádegið var skyggni orðið afar lítið innanbæjar. Óveðrið á að ganga hratt yfir verður í hvassast austanlands í kvöld og nótt.