Ríflega hálfa klukkustund tók að flytja hræ einnar tylftar hrossa með þyrlu úr gaddfreðinni Bessastaðatjörn í morgun. Talsverður undirbúningur hafði þó farið fram fyrir flutningana fyrr í morgun, en kafarar og þyrla frá fyrirtækinu Reykjavík Helicopter komu að aðgerðinni.