Verð á Brent Norðursjávarolíu, sem er sú olía sem notuð er í Evrópu, fór niður fyrir 50 Bandaríkjadali tunnan í morgun. Er þetta lægsta verð olíunnar í fimm og hálft ár. Sérfræðingur á olíumarkaði segir ekki ólíklegt að verðið á tunnuna nálgist að óbreyttu 40 Bandaríkjadala markið á næstu vikum.