Grikkland stendur á tímamótum en þingkosningar fara fram í landinu á morgun. Takast þar sérstaklega á tvö stjórnmálaöfl, annars vegar núverandi stjórnarflokkur, Nýi lýðræðisflokkurinn, og vinstriflokkurinn Syriza, með Alexis Tsipras í broddi fylkingar. Nái Syriza meirihluta gæti það þýtt að Grikkland lenti upp á kant við alþjóðlega lánardrottna andsins. Ástæða þess er sú að Syriza vill endursemja um 318 milljarða evra skuld Grikklands og binda þannig enda á áralangar launaskerðingar og hömlur á eyðslu þess opinbera í landinu sem til eru komnar vegna þeirra skuldbindinga sem Grikkland gekkst við vegna fjárhagsaðstoðar í kjölfar efnahagshruns landsins.