„Við könnumst vel við danska liðið og eins þjálfarann,“ sagði Ásgeir Örn Hallgrímsson, landsliðsmaður í handknattleik, er mbl.is hitti hann að máli Doha í Katar í morgun. Ásgeir og félagar í íslenska landsliðinu eru þegar farnir að búa sig undir viðureignina við lærisveina Guðmundar Þ. Guðmundssonar í danska landsliðinu í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í handknattleik sem fram fer annað kvöld.