Skækjumiðlarinn Dominique Alderweireld mætir á morgun fyrir dómara í París ásamt Dominique Strauss-Kahn, fyrrverandi framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, vegna gruns um tengsl þeirra við vændishring. Alderweireld neitar sök og segir réttarhöldin skrípaleik.