Það er óhætt að segja að #freethenipple hafi tröllriðið íslensku samfélagi í dag, en stúlkur og konur um allt land sameinuðust í því að lýsa yfir stuðningi við jafnrétti kynjanna. Sumar ákváðu að sýna brjóst sín í tilefni dagsins og tóku til að mynda nokkrar stúlkur sig saman og þrömmuðu Bankastrætið berbrjósta.