Kári Jónsson leikmaður Hauka var vígreifur eftir að Haukamenn höfðu tryggt sér oddaleik í seríu þeirra gegn Keflavík. Kári var líkast til ekki einu sinni hugmynd þegar Haukar skópu síðast sigur í úrslitakeppnisleik í Keflavík en það var fyrir 27 árum. Kári sagði fortíðina ekki vera að flækjast fyrir þeim og að þeir ætluðu sér ekkert annað en sigur þegar á Ásvelli er komið næstkomandi fimmtudag.