Smyrill gæddi sér á ógæfusömum starra í Mosfellsbænum og kippti sér ekki upp við það að herlegheitin væru fönguð á myndskeið. Þrátt fyrir að berjast hetjulega í nokkrar mínútur átti starrinn sér aldrei von í klóm ránfuglsins sem flaug með hann á brott þegar bardaginn var yfirstaðinn.