Mikill fjöldi fólks var samankominn á samstöðufundi Bandalags háskólamanna en ríflega 3.000 manns lögðu tímabundið niður störf í hádeginu. Fundargestir sögðust orðnir langþreyttir á hægum gangi viðræðna og segjast tilbúnir í langt verkfall ef þess þarf og sögðu góða mætingu bera vitni um samhug.