Í dag var frumsýnd ný stikla fyrir nýjustu Star Wars kvikmyndina, sem verður frumsýnd í kringum næstu jól. Myndin gerist 30 árum eftir ævintýrin í sjötta hluta myndaraðarinnar og má meðal annars sjá nokkuð aldraðan Han Solo, R2D2, Tóbakstuggu, gömlu góðu x-vængjurnar og margt fleira.