Lögreglan á Ítalíu hefur handtekið tvo menn sem voru meðal þeirra sem lifðu af er fiskibáti hvolfdi í Miðjarðarhafinu um helgina. Mennirnir eru taldir vera smyglarar og bera ábyrgð á slysinu. Líklegt er talið að milli 900-1.000 manns hafi verið um borð og að um 800 hafi farist.