Samtökin '78 lögðu í morgun fram 10 kærur vegna ummæla einstaklinga sem féllu í síðustu viku í umræðu um hinsegin fræðslu í grunnskólum. Fari málin fyrir rétt eru viðurlögin sektargreiðslur eða fangelsisvist allt að 2 árum. Lögmaður samtakanna segir ummælin fela í sér háð, róg, smánun og ógnun.