Brotlending farþegaþotu lággjaldaflugfélagsins Germanwings hefur valdið móðurfélagi þess, þýska flugfélaginu Lufthansa, varanlegum skaða. Þetta kom fram í ræðu sem Carsten Spohr, framkvæmdastjóri Lufthansa, flutti á ársfundi félagsins í Hamborg í Þýskalandi í morgun.