Kennarar í Frakklandi lögðu niður störf í morgun til að mótmæla breytingum á skólakerfi landsins. Breytingarnar felast meðal annars í því að draga úr kennslu í latínu og grísku og kenna nemendum í staðinn um klassíska menningu. Um er að ræða kennslu nemenda á aldrinum 11 til 15 ára.