Framkvæmdastjóri kvikmyndahátíðarinnar í Cannes hefur beðist afsökunar á því að konum á hátíðinni hafi verið vísað af rauða dreglinum fyrir að vera ekki í háhæluðum skóm. „Við biðjumst afsökunar,“ sagði Thierry Fremaux. „Það var kannski full mikill ákafi í öryggisvörðunum.“