Eftir langan og snjóþungan vetur hefur vorið farið hægt af stað og gróður hefur verið heldur lengur að taka við sér en á undanförnum árum. Dæmi eru um að plöntur og tré séu mánuði síðar á ferðinni en í fyrra þó er gróður að koma nokkuð vel undan vetri að sögn yfirgarðyrkjufræðings í Grasagarðinum.