„Ég held það sé óhætt að fullyrða að það hafa ekki verið tekin eins stór skref í uppbyggingu félagslegs húsnæðis hér á Íslandi í 50 ár,“ segir Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra. Síðast var ráðist í aðra eins uppbyggingu á tímum Bjarna Benediktssonar eldri.