Már Gunnarsson er fimmtán ára gamall blindur tónlistarmaður sem vakti mikla lukku fyrir frammistöðu sína við Arnarhól, þar sem hann flutti Vigdísi Finnbogadóttur frumsamið lag. Fyrstu kynni þeirra voru á tónleikum í Blindrafélaginu þar sem Már gekk beint á Vigdísi. Hún tók árekstrinum þó vel.