Mínútu þögn var haldin í dag við St. Paul's kirkjuna í London í dag til að minnast þeirra sem létust í hryðjuverkaárásinni á borgina fyrir tíu árum síðan. Biskupinn í London hélt að því loknu hjartnæma ræðu þar sem hann gerði að umtalsefni sínu þann hafsjó þjáninga sem árásin hafði í för með sér.