Hin sex ára gamla Þórdís Elísabet Arnarsdóttir þjáist af CMT4A taugahrörnunarsjúkdómnum. Um er að ræða alvarlega og sjaldgæfa undirtegund Charcot-Marie-Tooth, flokks taugahrörnunarsjúkdóma með svipuð en misalvarleg einkenni sem orsakast af göllum í genum úttaugakerfisins.