Sindri Kristinn Ólafsson, markvörður Keflvíkinga, er að stimpla sig rækilega vel inn í liðið í sumar þrátt fyrir að liðinu gangi ekki sem skildi. Í kvöld varði hann meistaralega á tímum og bjargaði heimamönnum vel þegar Gary Martin gerðist aðgangsharður við markið. Sindri var gríðarlega fúll með tap Keflvíkinga.