Fjöldi aurskriða lokar Siglufjarðarvegi og er ekkert lát á úrkomunni. Götur í bænum eru ófærar, vatn flæðir inn í hús og anna niðurföll ekki vatninu sem streymir um göturnar. Lagnir virðast vera stíflaðar eða fullar og reyna íbúar að bjarga eignum sínum.