Jökulhlaup úr eystri Skaftárkatli braut sér leið undan jöklinum snemma í morgun og náði um miðjan dag byggð. Gert er ráð fyrir að hlaupið muni stækka áfram í kvöld og á morgun, en rennslisaukningin í þessu hlaupi er sú mesta sem mæld hefur verið. Myndband af hlaupinu fylgir fréttinni.