Barack Obama Bandaríkjaforseti lýsti yfir reiði og sorg vegna atburða dagsins, þar sem tugur manna var skotinn til bana í háskóla í Oregon-ríki í Bandaríkjunum og yfir tuttugu til viðbótar særðust. Blaðamannafundur var haldinn í Hvíta húsinu í kvöld vegna skotárásarinnar.