„Stemningin er góð eins og verið hefur undanfarið og það er alltaf gott að koma heim. Það er engin spurning,“ sagði landsliðsmaðurinn Alfreð Finnbogason í samtali við mbl.is á æfingu landsliðsins á Laugardalsvelli í morgun fyrir síðustu tvo leikina í undankeppni EM gegn Lettlandi og Tyrklandi.