Aldís Fjóla Borgfjörð Ásgeirsdóttir er sveitastúlka frá Borgafirði eystri og söngkona í hljómsveitinni Borgfjörð. Um þessar mundir er hún á sláturvertíð á Vopnafirði auk þess að taka þátt í The Voice sem hóf göngu sína á SkjáEinum föstudaginn síðastliðinn. Áheyrnarprufu Aldísar má sjá í meðfylgjandi myndskeiði.