„Þetta var ofsalega erfið ákvörðun, því mig langaði að vera eins lengi og ég mögulega gæti á Ásbrú. En barnið gengur fyrir, alltaf.“ Valgerður K. Einarsdóttir er einn keppenda í þáttunum The Biggest Loser Ísland, en hún ákvað að hætta keppni eftir aðeins þrjár vikur.