Tugir þúsunda Sýrlendinga eru að flýja frá Aleppo og nágrenni í átt að Tyrklandi eftir loftárásir Rússa á borgina. Það er fátt sem minnir á íbúðabyggð í borginni en fjölmörg hús hafa verið sprengd upp. Um 300 þúsund borgarbúar eru innikróaðir en sótt er að þeim úr þremur áttum.