„Lagið fjallar um svona hættulegt háskakvendi, svona femme fatale týpu,“ segir Helgi Valur Ásgeirsson flytjandi lagsins „Óvær“ sem samið er Karli Olgeirssyni. Helgi segir það hlutverk sitt, eða ljóðmælandans, að vara við þessu skaðræðiskvendi þó ekki sé endilega gefið að hann sé einlægur í skilaboðunum.