Flytjandi lagsins „Ég leiði þig heim“ eftir Þóri Úlfarsson nýtur einstakrar stöðu í hjörtum íslenskra Eurovision aðdáenda, sem og annarra Íslendinga, enda er það enginn annar en „Þorparinn“ sjálfur, Pálmi Gunnarsson. Pálmi fór fyrir ICY hópnum sem flutti fyrsta framlag Íslendinga í Eurovision, „Gleðibankann“ og er því vel kunnugur keppninni.