Átkastaröskun er algengasta átröskunin, þar sveiflast fólk á milli mikilla átkasta og megrunar. „Almenn umræða um átraskanir snýr oft að mjóum stelpum, eða þeim sem kasta upp. Ég fæ oft til mín fólk með aðrar átraskanir en lotugræðgi og lystarstol sem hálft í hvoru biðst afsökunar á því að hafa pantað tímann. Það ætti að geta lagað þetta sjálft.“