Ungverska tónskáldið Emmerich Kálmán er í hávegum haft í Marseille í dag. Stuðningsmenn íslenska landsliðsins kannast vel við eitt af lögum hans; hafa raunar tekið miklu ástfóstri við það og kyrja á leikjum. „Ég er kominn heim...“ er sem sagt eftir Kálmán en íslenski textinn eftir Jón Sigurðsson.